Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í Brann unnu þriðja deildarleikinn í röð er liðið lagði tíu leikmenn KFUM Oslo, 2-1, í Bergen.
Jón Dagur Þorsteinsson og Kristall Máni Ingason voru báðir í byrjunarliðinu hjá Brann, en Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon voru ekki með vegna meiðsla.
Noah Holm og Vetle Dragsnes skoruðu mörkin undir lok fyrri hálfleiks nokkrum mínútum eftir að Fredrik Berglie sá rauða spjaldið í liði KFUM.
Liðið byrjaði tímabilið illa en er nú komið á gott skrið og situr í 7. sæti með 13 stig, fjórum stigum frá þriðja sætinu.



