Wijnaldum aftur í úrvalsdeildina? - Everton fylgist með Tchaouna - Bastoni ekki til Barca - Gordon efstur á óskalistanum
   sun 17. maí 2026 19:00
Guðmundur Jónasson
Daniel Badu: Veðrið í Brasilíu er allt öðruvísi en í Þorlákshöfn
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daniel Badu var ánægður eftir endurkomu sigur í Þorlákshöfn þegar fotbolti.net ræddi við hann eftir leik.

Lestu um leikinn: Ægir 1 -  2 Vestri

Vestri sitja í 2.sæti í Lengjudeildinni eftir 2-1 sigur í Þorlákshöfn í dag en liðin í kringum þá eiga leik til góða.

Þegar Badu var spurður hver fyrstu viðbrögð hans væru eftir leik þá hafði hann þetta að segja. „Ég er stoltur af strákunum, þetta er erfiður völlur til að koma spila á sérstaklega eftir að hafa lent 1-0 undir og spila á móti vindinum. Leikmennirnir héldu ró og sýndu að þeir vildu vinna þennan leik".

Markið sem Ægir skoraði var eftir 13 sekúndur í seinni hálfleik og Badu hafði þetta að segja um það. „Edson misreiknaði flugið á boltanum í þessum mikla vind sem er alveg skiljanlegt. Veðrið í Brasilíu er allt öðruvísi en í Þorlákshöfn, fyrir utan þetta mark var Edson frábær í leiknum". En Edson gekk til liðs við Vestra frá Brasilíska liðinu Rondoniense í vetur.

Viðbrögð Vestra voru miklu betri eftir að hafa lent undir í dag heldur en á móti Gróttu fyrr í vikunni.  „Við töluðum um það fyrir leik og þeir vissu að hvernig við brugðumst við á móti Gróttu var óásættanlegt, Elmar leiddi þetta vel í dag eftir markið og sýndi hvað Vestra leikmaður á að standa fyrir". 

Næsti leikur Vestra er á móti Gróttu á útivelli og þeir vilja væntanlega hefna sín eftir stórt tap á heimavelli í bikarnum. Badu hafði þetta að segja um næsta leik: „Við þurfum að læra af leiknum á móti þeim fyrr í vikunni. Þetta mun vera erfiður leikur og ef við mætum ekki 100% tilbúnir að leggja okkur alla fram þá munum við tapa, þetta er ekki flóknara en það.”


Slapp
banner
banner
banner