Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
   fös 15. maí 2026 23:17
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: Þrjár tvennur í Fífunni - Jafnt á Hlíðarenda
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Tvær skemmtilegar viðureignir fóru fram í 3. deildinni í kvöld þar sem þrír leikmenn sáu um að skora sex mörk í Fífunni.

Maríus Warén kom Augnabliki yfir á heimavelli gegn KÁ og leiddu Kópavogsstrákarnir 1-0 í hálfleik.

Nikola Dejan Djuric snéri stöðunni við með tvennu í síðari hálfleik áður en Kristján Ólafsson virtist gera út um viðureignina á 85. mínútu.

Heimamenn gáfust þó ekki upp og minnkaði Maríus muninn með sínu öðru marki í uppbótartíma. Augnablik lagði allt í sóknarleikinn en fékk mark í bakið þegar Kristján innsiglaði dýrmætan sigur fyrir Hafnfirðinga sem voru að ná í fyrstu stigin sín á deildartímabilinu.

Tvenna frá Maríusi dugði ekki til útaf tvennunum frá Nikola og Kristjáni.

Augnablik er með fjögur stig eftir þrjár fyrstu umferðir sumarsins, einu stigi meira heldur en KÁ.

Á sama tíma gerðu KH og Ýmir jafntefli. Liðin skiptust á að taka forystuna en lokatölur urðu 2-2.

KH er með fjögur stig en þetta er fyrsta stigið sem Ýmir fær á upphafi sumars.

Augnablik 2 - 4 KÁ
1-0 Maríus Warén ('23 )
1-1 Nikola Dejan Djuric ('60 )
1-2 Nikola Dejan Djuric ('66 )
1-3 Kristján Ólafsson ('85 )
2-3 Maríus Warén ('92 )
2-4 Kristján Ólafsson ('95)

KH 2 - 2 Ýmir
1-0 Haukur Ásberg Hilmarsson ('11 )
1-1 Breki Ottósson ('41 )
1-2 Ísak Aron Ómarsson ('77 )
2-2 Sigfús Kjalar Árnason ('80 )
Slapp
banner
banner
banner