Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
banner
   lau 16. maí 2026 16:56
Brynjar Ingi Erluson
Mjólkurbikar kvenna: Þróttur sló bikarmeistarana út
Þróttur er kominn áfram í 8-liða úrslit
Þróttur er kominn áfram í 8-liða úrslit
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Blikar eru úr leik
Blikar eru úr leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur R. 3 - 2 Breiðablik
1-0 Kayla Marie Rollins ('19 )
2-0 Unnur Dóra Bergsdóttir ('47 )
2-1 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir ('59 )
3-1 Sigríður Theód. Guðmundsdóttir ('85 )
3-2 Kristín Dís Árnadóttir ('96 )
Lestu um leikinn

Ríkjandi bikarmeistarar Breiðabliks eru úr leik í Mjólkurbikarnum eftir að hafa tapað fyrir Þrótti, 3-2, á AVIS-vellinum í Laugardal í dag.

Þróttarar komust óvænt í forystu á 19. mínútu leiksins er Kayla Marie Rollins setti boltann í markið. Hún fékk sendingu, skallaði honum áfram og virtist sóknin hafa runnið út í sandinn er Elín Helena Karlsdóttir tók á móti boltanum.

Kayla hélt hins vegar áfram að pressa, vann boltann og setti hann framhjá Herdísi í markinu.

Staðan 1-0 í hálfleik og Blikar ekki mjög hættulegar. Þróttarar að spila vel og náðu að bæta við öðru í upphafi síðari hálfleiks. Unnur Dóra Bergsdóttir og Þórdís Elva Ágústsdóttir stóðu í teignum, Þórdís kom með stutta sendingu á Unni sem tvöfaldaði forystuna.

Blikar minnkuðu muninn hálftíma fyrir leikslok. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir átti frábært hlaup up völlinn og að teignum áður en hún kom boltanum á Ólöfu sem gerði þetta að leik.

Áfram héldu Blikar að pressa, en urðu fyrir áfalli þegar Sigríður Theód. Guðmundsdóttir bætti við þriðja markinu aðeins fimm mínútum fyrir leikslok.

Kayla vann boltann fyrir utan teig Blika, kom honum á Sigríði sem skoraði.

Kristín Dís Árnadóttir náði í sárabótarmark á lokasekúndum leiksins er hún þrumaði boltanum í netið af stuttu færi eftir hornspyrnuna. Í kjölfarið flautaði dómarinn til leiksloka og því Þróttur sem mun vera í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit.

Heldur betur óvænt og ótrúlegt að hvorki Breiðablik né Valur, tvö bestu lið síðustu ára, séu ekki með í næstu umferð.
Slapp
banner
banner