Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
Erfitt að finna betri stað til að búa á en skoðar sína möguleika
Glódís afhjúpar hver stal senunni í nýliðavígslunni
Steini: Hennar að sýna að hún sé klár í að leysa þetta
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
   fös 15. maí 2026 20:08
Helgi Inguson
Gylfi Tryggva: Þetta er eins og í boxbardaganum
<i> „Það var mjög ljúft að heyra dómarann flauta leikinn af
„Það var mjög ljúft að heyra dómarann flauta leikinn af
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík/Njarðvík er komið í 8-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna eftir 3-2 sigur gegn Val. Þjálfari liðsins, Gylfi Tryggvason, var sáttur að leik loknum.

„Bara glaður. Þetta var mjög skemmtilegur leikur, það var mikið af skemmtilegum atvikum, góðum mörkum og færum. Þetta var opið og skemmtilegt," sagði Gylfi í viðtali við Fótbolta.net.

Lestu um leikinn: Valur 2 -  3 Grindavík/Njarðvík

Valur byrjaði leikinn vel og pressa þeirra gekk afskaplega vel. Eftir um tíu mínútna leik var sem Gylfi væri búinn að finna svör og Grindavík/Njarðvík tók yfir eftir það.

„Þær pressa vel og eru agressífar. Þetta er ekkert auðvelt, að leysa svona pressu, á sama tíma erum við með gott fótboltalið og erum góðar í að leysa pressu. Þetta er bara alltaf svona í öllum leikjum, þetta er eins og í boxbardaganum. Maður byrjar bara aðeins að þreifa hann fyrir sér og sjá hvar hann er að verjast og hvar hann er ekki að verjast. Við erum bara með mjög marga klára fótboltamenn sem eru góðir í að finna þessi svæði og við náðum svona tökum á þessum leik eftir þessar fyrstu tíu mínútur."

Kantmenn Grindavíkur/Njarðvíkur, Ása Björg og Sophia Romine, voru mjög öflugar í leiknum. Er ekki þægilegt að vera með svona hættulega kantmenn sem geta tekið menn á?

„Það er bara lúxus. Það er bara algjör snilld. Það gerir það bara erfiðara að verjast gegn okkur. Ég held að það sé erfitt að verjast á móti okkur. Ég held að mönnum líði aldrei þægilega, sama hvaða svæði þú ætlar að gefa eftir. Við erum tilbúin að ráðast á hvert einasta svæði sem andstæðingurinn ætlar að gefa okkur," sagði Gylfi að lokum.
Slapp
banner
banner