U19 landslið kvenna mun taka þátt í lokakeppni Evrópumótsins í sumar. Þær tryggðu sér farseðilinn á mótið með 0-3 sigri gegn Serbíu fyrir tæpum tveimur vikum síðan.
Ísland endaði með sjö stig á toppi riðilsins, Danir enduðu í öðru sæti, Finnar í þriðja og Serbar í neðsta sæti.
Ísland endaði með sjö stig á toppi riðilsins, Danir enduðu í öðru sæti, Finnar í þriðja og Serbar í neðsta sæti.
Mótið í sumar verður haldið í Bosníu frá 27. júní til 10. júlí en á meðan mótinu stendur kemur líklega til breytinga á leikjum í Íslandsmótinu.
Í liðinu eru margir leikmenn sem eru að spila stórt hlutverk í sínum liðum hér heima.
„Við höfum aðvarað félögin um að það komi til breytinga á leikjum," segir Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, við Fótbolta.net.
„Breytingarnar munu hafa áhrif á 10. og 11. umferð Bestu deildar kvenna og undanúrslit Mjólkurbikar kvenna, jafnvel úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna. Við munum kynna breytingarnar eins fljótt og við getum."


