Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 14:32
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
„Fyrir sóknarmann í góðu liði er þetta ekki boðlegt“
Óli Valur Ómarsson.
Óli Valur Ómarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óli Valur Ómarsson, leikmaður Breiðabliks, hefur fengið talsverða gagnrýni í umfjöllunarþáttum um íslenska fótboltann.

„Hann verður pottþétt var við umfjöllunina og það er rosaleg pressa á honum að fara að gera eitthvað. Það er sjokkerandi hvað hann hefur komið að fáum mörkum fyrir Breiðablik," segir Elvar Geir í útvarpsþættinum Fótbolti.net.

„Fyrir sóknarmann í góðu liði er þetta ekki boðlegt. Óli Valur hefur sýnt okkur það með Stjörnunni að hann er hæfileikaríkur leikmaður," segir Baldvin Borgarsson í þættinum og Elvar bætir við:

„Þegar hann fer í Breiðablik er hann leikmaðurinn sem allir vildu fá."

Í Stúkunni á Sýn Sport á dögunum fór Albert Brynjar Ingason yfir tölfræði Óla Vals.

„Hann þarf að eiga miklu betra tímabil en í fyrra ef Blikar ætla að gera einhverja hluti í ár. Þetta eru 27 leikir fyrir Breiðablik í bestu deildinni, þrjú mörk og ein stoðsending. Hann skoraði síðast þriðja júlí. Hann lagði upp síðast 19. maí. Þetta er dýr leikmaður sem skuldar," segir Albert.

Breiðabliksliðið hefur verið bitlaust sóknarlega í fyrstu umferðunum en það tekur á móti Þór í 4. umferðinni í kvöld.
Útvarpsþátturinn - Öflugri en nokkru sinni fyrr
Slapp
banner
banner