Það tafðist að hefja leik Vals og Grindavík/Njarðvík í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna þar sem gat var á öðru markinu.
Dómari leiksins, Hreinn Magnússon, hafði óskað eftir því, eftir skoðun á vellinum, að markið yrði lagað áður en leikurinn myndi hefjast.
Dómari leiksins, Hreinn Magnússon, hafði óskað eftir því, eftir skoðun á vellinum, að markið yrði lagað áður en leikurinn myndi hefjast.
En þegar kom að því að hefja leik var ekki enn búið að laga markið svo leikurinn tafðist um einhverjar mínútur.
Hafliði Breiðfjörð var á vellinum í sólinni á laugardaginn og tók skemmtilegar myndir af þessari atburðarrás.
Leikurinn endaði með 2-1 sigri Vals í hörkuleik en nýliðar Grindavík/Njarðvík sýndu flottar rispur.



