Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Hefur ekki áhuga á því að taka við Chelsea
Mynd: Porto
Ítalski þjálfarinn Francesco Farioli hefur engan áhuga á því að taka við Chelsea í sumar og vill frekar halda kyrru fyrir hjá Porto í Portúgal.

Farioli er eitt af mörgum nöfnum sem hafa verið nefnd á stjóralista Chelsea fyrir sumarið.

Hann hefur verið að gera góða hluti með Porto á þessari leiktíð, en liðið er með sjö stiga forystu á toppi portúgölsku deildarinnar, komst í undanúrslit bikarsins og í 8-liða úrslit Evrópudeildarinnar.

Ítalinn var spurður út í mögulegan áhuga Chelsea og hvort hann gæti fullvissað stuðningsmenn um að hann myndi hafna stóru tilboði frá Chelsea til að vera áfram hjá Porto og játaði hann því um leið.

„Já, það er alveg klárt mál,“ sagði Farioli, sem hefur gríðarlega mikla trú á verkefninu sem er í gangi hjá portúgalska félaginu.

Farioli tók við Porto á síðasta ári eftir að hafa áður þjálfað Ajax, Nice, Alanyaspor og Fath Karagumruk.
Slapp
banner
banner
banner