„Þetta eru gríðarleg vonbrigði. Við vorum með boltann allan leikinn en náðum bara ekki bara að skapa okkur nægilega góð færi til að klára þau. Menn voru kannski ekki nógu graðir að stökkva á hann og troða honum í netið.“ Sagði Donni þjálfari Þórs eftir 0-1 tap gegn Gróttu í dag.
Lestu um leikinn: Þór 0 - 1 Grótta
„Við fengum alveg færi til að skora en ég veit ekki hvort þetta séu gæði eða hvort vantaði meira að vera beittari eða einbeittari í færunum. Þá drullast boltinn ekki inn og þá er hættan að fá mark í andlitið.“
Þórsarar hafa nú tapað tveimur leikjum í röð og aðspurður um hvort það gerði næsta leik við Grindavík mikilvægari sagði Donni: „Það eru allir leikir jafn mikilvægir hvort sem það er tap eða sigur á undan en við ætlum að bara að vinna alla leiki og við ætlum bara að fara í hann, særð ljón og komum dýrvitlausir til leiks“
Nánar er rætt við Donna í spilaranum fyrir ofan





















