Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   lau 27. ágúst 2022 17:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Laugardalsvelli
Sjáðu markið: Cyera jafnaði metin fyrir Valskonur
Valur fagnar marki sínu.
Valur fagnar marki sínu.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Valskonur eru búnar að jafna metin á Laugardalsvelli þar sem bikarúrslitaleikurinn er í gangi.

Birta Georgsdóttir kom Blikum í fyrri hálfleik en það tók Val ekki langan tíma að jafna þegar í seinni hálfleikinn var komið.

Cyera Hintzen, sem hefur verið öflug að undanförnu, jafnaði metin fyrir Val.

„Valskonur vilja hendi á Karitas á miðjum vellinum en dómarinn lætur leikinn ganga enda Valskonur með boltann. Elísa finnur Láru sem er snögg að senda á Þórdísi sem stingur boltanum í svæði á milli miðvarða og markmanns. Þar mætir Cyera á fleygiferð á blindu hlið miðvarðanna, tekur boltann með sér, kemst fram hjá Evu Persson og klárar örugglega," skrifaði Mist Rúnarsdóttir í beinni textalýsingu frá leiknum.

Hægt er að sjá myndband af markinu hér fyrir neðan - úr útsendingu RÚV.


Athugasemdir
banner
banner
banner