Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   sun 27. desember 2020 21:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu það helsta frá Anfield: Johnstone bjargvætturinn
Johnstone varði frábærlega.
Johnstone varði frábærlega.
Mynd: Getty Images
Sam Johnstone, markvörður West Brom, bjargaði frábærlega undir lok leiksins gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

West Brom gerði 1-1 jafntefli við Liverpool og er fyrsta liðið til að sækja stig gegn Liverpool á útivelli í deildinni á þessari leiktíð.

Sadio Mane kom Liverpool yfir snemma leiks og leiddu heimamenn alveg þangað til á 82. mínútu, en þá jafnaði varnarmaðurinn Semi Ajayi fyrir West Brom með skalla eftir hornspyrnu - stöngin inn.

Liverpool fékk tækifæri til að vinna leikinn þegar Roberto Firmino fékk dauðafæri, en Johnstone varði frábærlega frá honum.

Allt það helsta úr leiknum má sjá hér að neðan en myndbandið birtist fyrst á vef Morgunblaðsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner