FH hafði betur gegn Keflavík í síðustu umferð riðlakeppni Fótbolta.net mótsins í kvöld og var Ólafur Kristjánsson sáttur að leikslokum.
FH lýkur riðlakeppninni með fjögur stig eftir tap gegn ÍA og jafntefli við Stjörnuna og býst Óli ekki við að bæta leikmönnum við hópinn fyrr en seinna í vor.
„Við þurfum að vinna með þann hóp sem við erum með og það eru margir ljósir punktar," sagði Óli eftir leikinn.
„Við erum með Brand, Gunnar og Lennon utan hóps og þeir sigla vonandi fljótlega inn í þetta hjá okkur. Við höldum okkur við þennan hóp allavega fram í febrúar, mars.
„Ég er mjög sáttur með líkamlegt stand á liðinu og hugarfarið."
Athugasemdir