Myles Lewis-Skelly er einn af leikmönnunum sem Manchester United íhugar að reyna við í sumarglugganum. Það er Sky Sports segir frá.
Lewis-Skelly hefur verið í aukahlutverki hjá Arsenal á þessu tímabili og hefur misst sæti sitt í enska landsliðshópnum. Thomas Tuchel, þjálfari landsliðsins, sagði nýlega að vinstri bakvörðurinn yrði að spila meira ef hann ætti að eiga möguleika á sæti í HM hópnum.
United ætlar sér að fá inn vinstri bakvörð og er félagið orðað við tvo aðra kosti. Það eru þeir Lewis Hall hjá Newcastle og Nathaniel Brown hjá Eintracht Frankfurt.

Lewis-Skelly skrifaði undir fimm ára samning við Arsenal síðasta sumar. Hann er 19 ára og er mikils metinn á Emirates eftir að hafa spilað vel á síðasta tímabili. En hann hefur einungis byrjað einn úrvalsdeildarleik á tímabilinu.
Brown hefur verið orðaður við Man Utd, Arsenal, Man City, Real Madrid og Barcelona í vetur og hefur verið fjallað um 52 milljóna punda verðmiða.
Enski landsliðsmaðurinn Hall er af mörgum talinn einn besti vinstri bakvörður úrvalsdeildarinnar og hefur Arsenal verið að fylgjast með honum.