David Ornstein, einn virtasti blaðamaður Bretlandseyja, segir ekkert benda til þess að Liverpool ætli að losa sig við Arne Slot fyrir næsta tímabil.
Hávær orðrómur gengur um að Xabi Alonso sé reiðubúinn að snúa aftur í þjálfun og að hann muni taka við Liverpool eftir þetta tímabil.
Frammistaða Liverpool á tímabilinu hefur verið mikil vonbrigði, svona í ljósi þess að liðið varð Englandsmeistari síðasta vor. Það er ekki með í titilbaráttunni í ár og liðið ekki verið neitt sérstaklega sannfærandi í flestum leikjum sínum.
Miðlar á Spáni og Þýskalandi hafa sagt frá því að Slot verði látinn fara eftir tímabili og að allar líkur séu á því að Alonso taki við keflinu, en Ornstein segist vera með aðrar upplýsingar.
Hann segir Slot njóta fulls trausts hjá Liverpool og að það ætli sér að halda honum fyrir næstu leiktíð. Markmiðið og forgangsatriðið er að finna réttu leikmennina fyrir Slot og það sé ekki einu til umhugsunar að láta hann taka poka sinn.
Athugasemdir



