Kerim Alajbegovic hefur átt ansi eftirminnilegan sólarhring. Hann kom inn á Cardiff City Stadium eftir um klukkutíma leik og lagði upp jöfnunarmark Bosníu og Hersegóvínu á 86. mínútu fyrir Edin Dzeko.
Leikurinn gegn Wales fór í vítaspyrnukeppni og skoraði Alajbegovic úr síðustu vítaspyrnunni og skaut Bosníu áfram í úrslit umspsilsins fyrir HM.
Leikurinn gegn Wales fór í vítaspyrnukeppni og skoraði Alajbegovic úr síðustu vítaspyrnunni og skaut Bosníu áfram í úrslit umspsilsins fyrir HM.
Alajbegovic er 18 ára og hefur spilað með RB Salzburg í vetur eftir að hann var keyptur frá Bayer Leverkusen.
Í morgun staðfesti svo Leverkusen að félagið væri búið að nýta endurkaupsákvæði og mun Alajbegovic snúa aftur til Leverkusen í sumar. Leverkusen greiðir um átta milljónir evra fyrir leikmanninn samkvæmt Fabrizio Romano og skrifar hann undir fimm ára samning hjá Leverkusen.
Næst á dagskrá hjá honum og bosníska landsliðinu er úrslitaleikur um sæti á HM gegn Ítölum á mánudag.
Can't wait to celebrate more of your success, Kerim! ???????????? pic.twitter.com/RPop5w4kFX
— Bayer 04 Leverkusen (@bayer04_en) March 27, 2026
Athugasemdir

