Ipswich Town hefur fengið mikla gagnrýni eftir að breski stjórnmálamaðurinn Nigel Farage birti myndefni frá heimavelli félagsins, Portman Road.
Farage, sem er talsvert umdeildur, pósaði með treyju félagsins og birti myndefni á samfélagsmiðlum, sem vakti mikla reiði meðal hóps stuðningsmanna Ipswich.
Farage, sem er talsvert umdeildur, pósaði með treyju félagsins og birti myndefni á samfélagsmiðlum, sem vakti mikla reiði meðal hóps stuðningsmanna Ipswich.
„Þetta er skammarlegt,“ sagði einn stuðningsmaður, en annar kallaði málið „PR-sjálfsmorð fyrir fjölskyldufélag.“
Ipswich brást við með yfirlýsingu en í henni stóð: „Félagið er ekki pólitískt og styður hvorki einstaklinga né flokka."
Samkvæmt fréttum var heimsókn Farage ekki skipulögð af félaginu sjálfu heldur bókaði hann ferð um leikvanginn líkt og aðrir gestir.
Athugasemdir



