Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
   fim 26. mars 2026 13:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Afturhvarf til fortíðar hjá ÍA - Fjólublái búningurinn snýr aftur
Haukur Andri og Haraldur Ingólfsson. Haraldur endaði næstmarkahæstur með níu mörk meistaratímabilið 1996.
Haukur Andri og Haraldur Ingólfsson. Haraldur endaði næstmarkahæstur með níu mörk meistaratímabilið 1996.
Mynd: ÍA/Jón Gautur
Skagamenn frumsýndu í dag varabúning sinn fyrir komandi tímabil. Það er afturhvarf til fortíðar á Skaganum því varabúningurinn er fjólublár.

Búningurinn var líka fjólublár 1996 og varð ÍA Íslandsmeistari það ár. Í liðinu þá var Haraldur Ingólfsson sem er faðir Hauks Andra Haraldssonar sem er í liðinu í dag. Þeir eru á myndunum hér við fréttirnar.

„Fjólublái er kominn aftur. Litur sem lifir áfram – frá kynslóð til kynslóðar," segir í færslu Skagamanna.

Aðalbúingur ÍA er áfram hefðbundinn, gul treyja og svartar stuttbuxur. ÍA mætir Fram á útivelli í fyrstu umferð Bestu deildarinnar 12. apríl en fyrst tekur liðið á móti Haukum/KFR í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins mánudaginn 6. apríl.



Slapp
Athugasemdir
banner
banner