Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
   fös 27. mars 2026 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
„Messi ræður hvort hann fari með á HM"
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Lionel Scaloni landsliðsþjálfari Argentínu vill ólmur taka goðsögnina Lionel Messi með á næsta heimsmeistaramót þar sem Argentínumenn hefja titilvörn eftir að hafa staðið uppi sem sigurvegarar í Katar 2022.

Messi var frábær á mótinu og leiddi Argentínu til sigurs eftir magnaðan úrslitaleik gegn Frakklandi.

Á þeim tíma var Messi leikmaður PSG í Frakklandi en í dag leikur hann fyrir Inter Miami í Bandaríkjunum. Messi er algjör lykilmaður og leiddi Inter að sínum fyrsta MLS titli í fyrra, þrátt fyrir að vera 38 ára gamall.

Hann verður 39 ára í sumar og ef Argentína tekst að verja titilinn verður Messi næstelsti leikmaður sögunnar til að verða heimsmeistari, eftir Dino Zoff sem varði mark Ítalíu á HM 1982.

„Ég mun gera allt í mínu valdi til að hafa Messi með á HM," sagði Zoff.

„Hann þarf að taka þátt í þágu fótboltaheimsins, en það er hann sem tekur ákvörðunina."

Messi vill ekki vera byrði á argentínska landsliðinu og segist ætla að taka einn dag í einu. Scaloni þarf að tilkynna 26 manna HM-hóp Argentínu fyrir lok maí.

   27.03.2026 17:00
Inter Miami nefnir stúku í höfuðið á Messi

Slapp
Athugasemdir
banner
banner
banner