Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
banner
   fös 27. mars 2026 10:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Staðfesta að leikmaður sé á leið í Völsung
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Modoumatarr Mbye er samkvæmt sænska félaginu karlbergs BK á leið til Íslands og mun spila með Lengjudeildarliði Völsungs í sumar. Völsungur hefur ekki tilkynnt um komu leikmannsins.

Karlbergs hefur kvatt leikmanninn og segir að hann sé búinn að skrifa undir hjá Völsungi.

Mbye hefur verið í tvö tímabil hjá Karlbergs í sænsku C-deildinni, þriðju efstu deild. Hann er 25 ára sænskur miðjumaður.

„Við óskum honum alls hins besta með nýtt ævintýri á Íslandi og erum ánægðir að sjá að enn einn leikmaðurinn hefur fengið innspýtingu í sinn feril með því að spila með KB," segir Lennart Sandahl sem er yfirmaður fótboltamála hjá Karlbergs.

Mbye skoraði eitt mark í deildinni á síðasta tímabili.

Næst á dagskrá hjá Völsungi er bikarleikur gegn Kormáki/Hvöt á heimavelli á morgun.



Slapp
Athugasemdir
banner