Franska félagið Lens mun ekki áfrýja ákvörðun frönsku deildarinnar um að fresta leik liðsins gegn Paris Saint-Germain í næsta mánuði, en þetta kemur fram í L'Equipe.
PSG óskaði eftir frestun til þess að fá meiri tíma til að undirbúa sig fyrir leikina gegn Liverpool í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Upphaflega átti PSG að mæta Lens þann 11. apríl, en sá leikur kemur á milli leikjanna gegn Liverpool.
Hingað til hefur franska deildin sýnt mikið umburðarlyndi og frestað deildarleikjum PSG, en í þetta sinn kemur þetta verulega á óvart enda er PSG í titilbaráttu við Lens.
Samkvæmt L'Equipe mun Lens ekki áfrýja ákvörðuninni til Ólympíunefndarinnar í Frakklandi. Félagið segist vonsvikið með ákvörðunina, en að það muni ekki reyna að eyða orku sinni í að reyna sannfæra frönsku deildina um að hafna frestun leiksins.
PSG er í toppsætinu með 60 stig, stigi á undan Lens sem er í öðru sæti. PSG á leik til góða gegn Nantes, sem er í næst neðsta sætinu.
Athugasemdir



