Ísland 2 - 5 Rúmenía
0-1 Darius Bota ('22)
0-2 Alexandru Goncear ('30)
0-3 Alexandru Goncear ('34)
1-3 Sigurður Breki Kárason ('44)
1-4 Darius Tripon ('51)
1-5 Ioan Precup ('57, víti)
2-5 Markús Andri Daníelsson Martin ('69)
Rauð spjöld: Skarphéðinn Gauti Ingimarsson ('17) og Denys Muntean ('64)
0-1 Darius Bota ('22)
0-2 Alexandru Goncear ('30)
0-3 Alexandru Goncear ('34)
1-3 Sigurður Breki Kárason ('44)
1-4 Darius Tripon ('51)
1-5 Ioan Precup ('57, víti)
2-5 Markús Andri Daníelsson Martin ('69)
Rauð spjöld: Skarphéðinn Gauti Ingimarsson ('17) og Denys Muntean ('64)
U17 karla tapaði 2-5 gegn Rúmeníu í fyrsta leik sínum í seinni umferð undankeppni EM 2026, en leikið er á Ítalíu í Perugia.
Skarphéðinn Gauti Ingimarsson fékk að líta rauða spjaldið á 17. mínútu og skömmu síðar tóku Rúmenar forystuna. Alexandru Goncear skoraði svo tvennu áður en Sigurður Breki Kárason náði að minnka muninn fyrir íslenska liðið undir lok fyrri hálfleiks.
Rúmenar skoruðu svo fyrstu tvö mörk seinni hálfleiks og gerðu út um leikinn. Rúmenar fengu að líta rauða spjaldið á 64. mínútu og Markús Andri Daníelsson lagaði aðeins stöðuna fyrir íslenska liðið skömmu síðar eftir undirbúning frá Birki Þorsteinssyni. Nær komust íslensku strákarnir ekki og lokatölur 5-2 fyrir Rúmenum.
Ísland mætir næst Ítalíu á laugardag og hefst sá leikur kl. 14:00 að íslenskum tíma. Ísland mætir svo Portúgal í lokaleiknum.
Athugasemdir


