Danski sóknarmaðurinn Rasmus Höjlund hefur gefið sterklega í skyn að Ruben Amorim, fyrrum stjóri Manchester United, hafi ekki viljað hafa hann hjá félaginu
Man Utd, sem þá var undir stjórn Erik ten Hag, greiddi um 72 milljónir punda fyrir Höjlund árið 2023. Hann kom frá Atalanta eftir tímabil þar sem hann skoraði níu mörk í 32 leikjum í Serie A á Ítalíu.
Man Utd, sem þá var undir stjórn Erik ten Hag, greiddi um 72 milljónir punda fyrir Höjlund árið 2023. Hann kom frá Atalanta eftir tímabil þar sem hann skoraði níu mörk í 32 leikjum í Serie A á Ítalíu.
Höjlund átti erfitt uppdráttar með Man Utd og fór í gegnum langa kafla án þess að skora.
Á síðasta tímabili fór Höjlund í gegnum 21 leik án marks, frá desember og fram í mars, þegar United endaði í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Hann var síðan lánaður til Napoli og var skipt út fyrir Benjamin Sesko. Gert er ráð fyrir að Napoli kaupi hann fyrir um 38 milljónir punda.
„Ég fékk það sem ég vildi með þessum félagaskiptum,“ sagði Höjlund við TV2.
„Ég fékk lið sem trúir mikið á mig. Félag sem trúir á mig. Íþróttastjóra, forseta og þjálfara sem vilja mig."
Svo sagði Höjlund: „Ég var settur svolítið í ákveðinn kassa undir lokin í Manchester. Ég vissi að ég myndi ekki fá mikinn spilatíma ef þetta héldi svona áfram."
Höjlund, sem er 23 ára, hefur skorað 14 mörk í 37 leikjum með Napoli.
Athugasemdir

