Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 25. mars 2026 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Telur Neymar enn vera hæfileikaríkastan
Neymar.
Neymar.
Mynd: EPA
Neymar komst ekki í síðasta landsliðshóp Brasilíu áður en hópurinn er valinn fyrir HM. Hann fór ekki leynt með svekkelsi sitt út af þessu.

Fabinho, fyrrum miðjumaður Liverpool, hefur lýst yfir stuðningi við Neymar, sem er 34 ára, og telur að hann eigi að vera í leikmannahópi Brasilíu fyrir HM í sumar.

Mikið hefur verið rætt og ritað um það í Brasilíu hvort að Neymar eigi að fara með á mótið. Hann hefur glímt mikið við meiðsli síðustu ár en hefur samt sem áður tekist að spila 33 leiki með Santos frá því í fyrra og skorað 14 mörk.

Fabinho vonast til að sjá Neymar í HM-hópnum. „Að mínu mati er hann enn hæfileikaríkasti brasilíski leikmaðurinn í dag," sagði miðjumaðurinn sem er í nýjasta landsliðshópnum.

„Hann getur skipt sköpum á hvaða augnabliki sem er, þannig að hann getur verið gríðarlega mikilvægur á heimsmeistaramóti. Ef hann er í góðu formi og líkamlega heill er hann sá besti."

Neymar hefur spilað 128 landsleiki fyrir Brasilíu og skorað 79 mörk.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner