Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í karla- og kvennaflokki í leikjum dagsins í miðjum landsleikjaglugga hjá körlunum.
Nafnarnir Kolbeinn Birgir Finnsson og Kolbeinn Þórðarson áttust við í afar fjörugum æfingaleik á milli Vålerenga og Göteborg sem lauk með sex marka jafntefli.
Mikael Neville Anderson var ekki með í sigri Djurgården í æfingaleik gegn finnska stórveldinu HJK enda er hann upptekinn með íslenska landsliðinu þessa dagana á meðan Adam Ingi Benediktsson hélt hreinu í keppnisleik hjá AB í Kaupmannahöfn.
AB er í frábærri stöðu í titilbaráttu þriðju efstu deildar danska boltans og stefnir upp í næstefstu deild sem inniheldur nú þegar mikið af Íslendingum.
Í kvennaboltanum lék Emilía Kiær Ásgeirsdóttir fyrstu 76 mínúturnar í liði RB Leipzig á útivelli gegn botnliði Jena.
Staðan var 0-1 fyrir Leipzig þegar Emilíu var skipt af velli, en tíu leikmenn Jena náðu að skora jöfnunarmark skömmu eftir skiptinguna. Lokatölur 1-1 og siglir Leipzig lygnan sjó í neðri hluta þýsku deildarinnar með 26 stig eftir 22 umferðir.
Að lokum bar Sara Björk Gunnarsdóttir fyrirliðaband Al-Qadsiah í naumu tapi gegn stórveldi Al-Ittihad í Sádi-Arabíu.
Brasilíska landsliðskonan Adriana skoraði eina mark Al-Qadsiah í tapinu.
Valerenga 3 - 3 Goteborg
Djurgarden 4 - 2 HJK
AB 2 - 0 Roskilde
Jena 1 - 1 RB Leipzig
Al-Ittihad 2 - 1 Al-Qadsiah
Athugasemdir



