Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 25. mars 2026 21:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Everton íhugar lögsókn út af refsingu Chelsea
David Moyes, stjóri Everton.
David Moyes, stjóri Everton.
Mynd: EPA
Chelsea slapp með skrekkinn.
Chelsea slapp með skrekkinn.
Mynd: EPA
Everton er að skoða möguleika á lögsókn gegn ensku úrvalsdeildinni vegna meðferðar á máli Chelsea. Félagið er sagt vera að undirbúa bréf til deildarinnar þar sem óskað verður eftir formlegri skýringu á því hvers vegna Chelsea slapp svo vel frá refsingu.

Enska úrvalsdeildin sektaði lagði rúmlega 10 milljóna punda sekt á Chelsea vegna leynilegra greiðslna til umboðsmanna og þriðja aðila í tengslum við leikmannakaup. Greiðslurnar námu alls yfir 47 milljónum punda og áttu sér stað á árunum 2011 til 2018.

Félagið fékk einnig eins árs skilorðsbundið félagaskiptabann sem þýðir að félagið sleppur með skrekkinn ef það gerist ekki brotlegt á næstu tveimur árum.

Málið snýr að vísvitandi brotum og leynd í tengslum við félagaskipti. Brotin áttu sér stað þegar rússneski auðjöfurinn Roman Abramovich átti félagið. Úrvalsdeildin tók tillit til þess að núverandi eigendur félagsins tilkynntu brotin sjálfir og sýndu fullt samstarf og því var refsingin mildari. Þó er hægt að færa rök fyrir því að refsingin sé væg miðað við umfang málsins og þann ávinning sem félagið hafði af brotunum.

Everton telur sig sérstaklega beitt órétti þar sem félagið missti átta stig á tímabilinu 2023-24 fyrir tvö brot á fjárhagsreglum. Einnig voru stig tekin af Nottingham Forest fyrir slík brot en Chelsea sleppur með það.

Hjá Everton eru menn ekki sáttir en félagið neitaði að tjá sig þegar Guardian sóttist eftir því.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner