Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
   fös 27. mars 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítrekar að Olise sé ekki til sölu - „Við ætlum ekki að hjálpa þeim að styrkja liðið“
Michael Olise
Michael Olise
Mynd: EPA
Uli Hoeness, stjórnarmaður hjá Bayern München, hefur tekið undir orð Max Eberl, yfirmanns íþróttamála hjá félaginu, í umræðu um franska vængmanninn Michael Olise, en þeir segja hann ekki til sölu í sumar.

Olise hefur verið meðal þeirra sem skarað hafa fram úr í liði Bayern síðan hann kom frá Crystal Palace fyrir tveimur árum.

Mohamed Salah mun yfirgefa Liverpool í sumar, en hann hefur verið langbesti leikmaður liðsins síðustu níu ár. Stórt skarð sem þarf að fylla í en Olise gæti verið rétti maðurinn í það.

Eberl sagði á dögunum að það kæmi ekki til greina að selja Olise í sumarglugganum og hefur Hoeness tekið undir það. Hann segist fyrst og fremst hugsa um stuðningsmennina, sem vilja halda áfram að sjá frábæran fótbolta frá liðinu.

„Liverpool hefur þegar eytt 500 milljónum evra og að eiga slakt tímabil. Við ætlum ekki að hjálpa þeim að spila betur á næsta tímabili,“ sagði Hoeness á KI hátíðinni.

„Við spiluðum þennan leik fyrir stuðningsmenn félagsins. Það eru 430 þúsund meðlimir hjá félaginu og við eigum milljónir stuðningsmanna um allan heim. Það að fá 200 milljónir evra í bankann gerir ekkert fyrir þá, annað en það að hvern einasta laugardag munum við spila verri fótbolta,“ sagði hann enn fremur.
Slapp
Athugasemdir
banner