Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
   fim 26. mars 2026 23:40
Brynjar Ingi Erluson
Ekitike og Mbappe afgreiddu Brasilíu
Hugo Ekitike skoraði annað mark Frakka
Hugo Ekitike skoraði annað mark Frakka
Mynd: EPA
Frakkar unnu frækinn 2-1 sigur á Brasilíu í vináttulandsleik á Gillette-leikvanginum í Foxborough í Massachusetts í Bandaríkjunum í kvöld, en Hugo Ekitike, framherji Liverpool, reyndist hetja þeirra frönsku.

Kylian Mbappe og Ekitike hafa báðir verið að glíma við meiðsli að undanförnu en voru klárir í slaginn með þjóð sinni í kvöld.

Mbappe skoraði frábært mark á 32. mínútu er Ousmane Dembele sendi hann í gegn á móti Ederson. Mbappe lyfti boltanum skemmtilega yfir Ederson og kom Frökkum yfir.

Dayot Upamecano, varnarmaður Frakka, var rekinn af velli í byrjun síðari hálfleiks fyrir að taka niður Luiz Henrique sem var að sleppa í gegn. Hann sá gula spjaldið en dómarinn var sendur að VAR-skjánum og var litnum breytt í rautt.

Manni færri komust Frakkar í 2-0 en annað markið gerði Liverpool-maðurinn Hugo Ekitike eftir frábæra sókn. Ekitike hóf sóknina og lauk henni er hann hljóp á stungusendingu Michael Olise og lyfti boltanum yfir Ederson.

Brassarnir náðu í mark á 78. mínútu er miðvörðurinn Bremer skoraði af stuttu færi er Frökkum mistókst að hreinsa frá aukaspyrnu þeirra brasilísku.

Vini Jr komst nálægt því að jafna metin seint í uppbótartíma en klikkaði á dauðafæri.

2-1 sigur Frakklands staðreynd sem Kólumbíu á sunnudag á meðan Brassar mæta Króatíu aðfaranótt miðvikudags.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner