Júlíus Magnússon, miðjumaður Elfsborg í Svíþjóð, skoraði fyrir liðið er það vann Öster 3-1 í æfingaleik í gær.
Víkingurinn skorar ekki oft en hefur þó verið að fá fleiri tækifæri til að skora undanfarið.
Hann er með eitt mark í sænska bikarnum á þessu tímabili og skoraði þá eitt af mörkum liðsins í æfingaleik gegn Öster í gær. Gott að næla sér í mark þegar stutt er í mót en sænska úrvalsdeildin hefst þann 6. apríl.
Júlíus var í byrjunarliðinu en Ari Sigurpálsson byrjaði á bekknum. Ari kom inn á eftir um klukkustunda leik en þetta var hans fyrsti leikur eftir tíu vikna fjarveru vegna ökklameiðsla.
Elfsborg mætir Gautaborg í 1. umferðinni en Kolbeinn Þórðarson er á mála hjá Gautaborg.
Athugasemdir



