Brasilíumaðurinn Vagner Love hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir langan og farsælan feril.
Þessi 41 árs gamli framherji greindi frá því á Instagram að hann muni spila sinn síðasta leik á laugardag. Love hefur spilað með Retro FC í heimalandinu, Brasilíu, síðan um mitt ár 2025, en mun nú taka við hlutverki aðstoðarþjálfara hjá félaginu.
Hann á að baki langan og fjölbreyttan feril þar sem hann lék fyrir fjölda félaga, auk þess að spila 20 landsleiki fyrir Brasilíu.
Brasilíski sóknarmaðurinn er í dag sköllóttur en þegar hann var á hátindi ferilsins þá var hann þekktur fyrir það að vera með bláar fléttur.
Athugasemdir

