Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   fös 27. mars 2026 23:14
Ívan Guðjón Baldursson
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs svaraði spurningum eftir að hafa mætt KA í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins í kvöld.

Lestu um leikinn: Þór 8 -  7 KA

Þór náði forystunni í síðari hálfleik en KA-menn jöfnuðu á lokamínútunum svo grípa þurfti til vítaspyrnukeppni til að skera úr um sigurvegara.

„Mér fannst leikurinn skrýtinn, mér fannst við byrja hann mjög illa. Við komumst aðeins inn í hann í fyrri hálfleik en heilt yfir vorum við ekkert sérstaklega góðir. Það var svolítið hátt spennustig á okkur," sagði Siggi Höskulds sem virtist ekki sérlega hress að leikslokum.

„Í seinni hálfleik voru kaflar góðir og svo fórum við eitthvað að reyna að verja þetta og féllum aðeins aftarlega og vorum pínu smeykir einhvern veginn að stíga upp, sérstaklega eftir að við fengum ódýr færi á okkur gegn Fylki í síðasta leik. Það var í rauninni tiltölulega eina markmið leiksins og vikunnar að bæta fyrir það sem fór úrskeiðis. Við breyttum aðeins í uppspilinu og uppstillingunni þannig það var ekki alveg nógu mikill taktur í spilinu okkar. Heilt yfir er ég bara ánægður að vinna bikar og við vorum nálægt því að klára þetta í venjulegum leiktíma.

„Heilt yfir var frammistaðan ekki nægilega góð en við bættum það sem við ætluðum að bæta þannig að ég er ánægður með það. Við þurfum að vera betri þegar við mætum FH."


KA fékk nokkur dauðafæri í fyrri hálfleiknum og viðurkennir Siggi að sínir menn hafi verið heppnir að vera ekki undir í leikhlénu.

„Ég hef sjaldan séð svona mikið af dauða dauða dauðafærum í leik sem fara forgörðum. Við fengum þrjú dauða dauða og þeir örugglega fjögur eða fimm. Við vorum alveg heppnir líka."
Slapp
banner
banner