Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   fös 27. mars 2026 11:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
78 ára Roy Hodgson tekur við Bristol City
Mynd: EPA
Gamla brýnið Roy Hodgson hefur tekið við stjórnartaumunum hjá Bristol City. Hann hefur verið ráðinn bráðabirgðastjóri liðsins eftir að Gerhard Struber var látinn fara.

Hodgson þekkir til hjá Bristol City en hann stýrði liðinu síðast árið 1982, fyrir 44 árum síðan, og var það hans annað stjórastarf á ferlinum. Hodgson hefur ekki verið í starfi frá því að hann yfirgaf Crystal Palace í febrúar 2024.

Austurríksismaðurinn Struber var látinn fara frá Bristol City eftir einungis einn sigur í síðustu níu leikjum. Liðið situr í 16. sæti ensku Championship-deildarinnar. Fyrir þennan erfiða kafla var liðið stigi frá umspilssæti. Lykilmenn voru seldir í glugganum og hefur gengið verið erfitt í kjölfarið.

„Ráðningin á Roy snýst um meira en bara úrslit næstu sjö leikja. Það sem eftir er af tímabilinu mun hann hjálpa okkur að setja okkur þau gildi og staðla sem við þurfum hjá félaginu til að ná árangri í framtíðinni. Roy er mjög reynslumikill þjálfari sem hefur náð árangri og unnið á hæsta stigi. Hann mun styðja mig, leikmenn okkar á meðan við vinnum að því að ná okkar markmiðum. Við erum að ráða íþróttastjóra sem mun hafa bein áhrif á ráðningu nýs fastráðins aðalþjálfara," segir Charlie Boss sem er framkvæmdastjóri Bristol City.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 43 25 11 7 85 43 +42 86
2 Ipswich Town 42 21 13 8 73 44 +29 76
3 Millwall 43 22 10 11 58 47 +11 76
4 Southampton 43 21 12 10 75 51 +24 75
5 Middlesbrough 43 20 13 10 64 44 +20 73
6 Hull City 43 20 9 14 65 61 +4 69
7 Wrexham 43 18 13 12 65 60 +5 67
8 Derby County 43 19 9 15 62 53 +9 66
9 Norwich 43 18 7 18 59 52 +7 61
10 Bristol City 43 16 10 17 54 55 -1 58
11 QPR 43 16 10 17 58 65 -7 58
12 Sheffield Utd 43 17 6 20 61 59 +2 57
13 Birmingham 43 15 12 16 52 53 -1 57
14 Watford 43 14 15 14 52 53 -1 57
15 Swansea 43 16 9 18 51 56 -5 57
16 Preston NE 43 14 15 14 50 55 -5 57
17 Stoke City 43 15 10 18 49 48 +1 55
18 Portsmouth 43 13 12 18 44 57 -13 51
19 Charlton Athletic 43 12 14 17 40 52 -12 50
20 West Brom 43 12 13 18 44 56 -12 49
21 Blackburn 44 12 13 19 39 54 -15 49
22 Oxford United 43 10 14 19 41 55 -14 44
23 Leicester 43 11 14 18 54 65 -11 41
24 Sheff Wed 43 1 12 30 26 83 -57 -3
Slapp
banner
banner
banner