Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
   fös 27. mars 2026 11:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Casemiro: Það er búið að taka ákvörðun
Mynd: EPA
Casemiro er ekki að reyna breyta ákvörðun Manchester United en ákvað var í janúar að brasilíski miðjumaðurinn myndi yfirgefa félagið í sumar eftir fjögur tímabil hjá félaginu.

Bandarísku félögin Inter Miami og LA Galaxy hafa verið orðuð við hinn 34 ára gamla Casemiro.

Eftir að tilkynnt var 22. janúar að Casemiro færi í sumar hefur hann spilað virkilega vel í United treyjunni og kallað hefur verið eftir því að ákvörðunin verði endurskoðuð.

Stuðningsmenn sungu um eitt ár í viðbót fyrir Casemiro eftir markið hans gegn Aston Villa og aftur þegar hann fór af velli.

„Ég nýt mín ennþá mikið í Manchester," sagði Casemiro eftir vináttuleikinn gegn Frökkum í gær.

„Það er búið að tilkynna þetta. Ástin sem ég hef fengið frá stuðningsmönnum hefur mikla þýðingu fyrir mig."

„En ég trúi því virkilega að ákvörðunin hafi veirð tekin og henni verði ekki breytt. Ég nýt mín þessa stundina. Ég held að það verði tilfinninga ríkar stundir í síðustu leikjunum hjá Manchester United."


Ákvæði er í samningi Casemiro um aukaár ef hann byrjar 35 deildarleiki á þessu tímabili en samkomulag er um að litið verði framhjá því ákvæði.

Casemiro hefur spilað mjög vel eftir að Michael Carrick tók við United, spilar sem annar af djúpu miðjumönnunum í liðinu.

„Carrick er sérfræðingur í minni stöðu á vellinum, hann var virkilega frábær leikmaður. Það gerir allt auðveldara og hann er alltaf að tala við okkur. Mér finnst dínamíkin góð núna í Manchester og verkefni mitt núna er að koma félaginu aftur í Meistaradeildina," segir Casemiro.

Framundan er vináttuleikur gegn Króatíu og svo tekur enska úrvalsdeildin við 13. apríl hjá Casemiro.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner