Nú er kominn í loftið nýr spurningaleikur tengdur Mjólkurbikarnum þar sem þátttakendur horfa á myndbönd, svara spurningum og eiga möguleika á glæsilegum vinningum.
Í pottinum eru meðal annars Hleðsla, ostakörfur, inneignir, grjónapúðar, miðar á leiki í Mjólkurbikarnum og fleiri skemmtilegir vinningar.
Leikurinn þróast samhliða keppninni, því í lok hverrar umferðar í útsláttarkeppninni koma inn nýjar spurningar. Það þýðir að þú getur tekið þátt aftur og aftur og sýnt hvort þú sért raunverulega með Mjólkurbikarinn á hreinu.
Athygli er vakin á því að leikurinn er aðeins virkur í farsíma, svo best er að taka þátt beint í símanum.
Prófaðu leikinn núna HÉR og reyndu á þekkinguna.
Athugasemdir


