Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
banner
   fim 26. mars 2026 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Á erfitt með að spila PlayStation eftir meiðslin
Noa Lang.
Noa Lang.
Mynd: EPA
Noa Lang, leikmaður Galatasaray og hollenska landsliðsins, lenti í leiðinlegum meiðslum í leik gegn Liverpool í Meistaradeildinni á dögunum.

Lang lenti á auglýsingaskilti og fór putti hans næstum því af við það. Hann fór í aðgerð og sem betur fer tókst að bjarga puttanum.

Lang er núna mættur í landsliðsverkefni þar sem hann ræddi við fjölmiðla um meiðslin.

„Læknirinn telur að fingurinn jafni sig. Eins og staðan er núna get ég hins vegar ekki spilað PlayStation," sagði Lang.

„Ég er rétthentur, þannig að þetta er smá vesen þegar ég fer á klósettið. Ég þarf líka aðstoð við að komast í sturtu."

Lang býst við að geta spilað fótbolta þrátt fyrir meiðslin.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner