Fred Saraiva, leikmaður Fram, er að fara inn í sitt áttunda ár í íslenska boltanum. Hann gekk til liðs við Fram árið 2018 og hefur spilað þar samfleytt síðan, farið upp með liðinu úr Lengjudeildinni og blómstrað í Bestu deildinni.
„Ég held að ríkisfangið sé að fara að detta inn hjá honum," sagði sagnfræðingurinn Stefán Pálsson í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net þegar rætt var um Fred.
„Hann hefur komið mikið inn í þjálfunina og annað slíkt (hjá Fram)."
Fred hefur haldið mikla tryggð við Fram í gegnum árin þrátt fyrir áhuga annars staðar frá.
„Það hefur ekki vantað tilboðin. Það hefur verið áhugi á honum frá Hlíðarenda ítrekað. Úr Víkinni líka. Hann hefur bara afþakkað það," sagði Stefán.
„Hann er þakklátur félaginu. Það rataði í fréttirnar að við fengum á sínum tíma ansi feitan bakreikning tengdan Fred. Þá hafði einhver þýsk lögmannsstofa, einhverjir hákarlar, farið og samið um uppeldisbætur fyrir fullt af einhverjum brasilískum félögum og borgað þeim eitthvað smotterí fyrir. Svo voru bara send út kröfubréf. Fram endaði á að reiða fram alvöru kaupverð nokkrum árum síðar, eitthvað sem félag í Lengjudeildinni hefði aldrei látið sig dreyma um að gera - kaup útlending fyrir milljónir."
„Án þess að vita það þá held ég að Fred hafi kannski upplifað það að hann skuldi pínulítið og skilar sínu fyrir klúbbinn."
Stefán var þarna að tala um mál frá 2022, fjórum árum eftir að Fred kom til Fram. Fram fékk reikning upp á vel yfir tíu milljónir út af uppeldisbætum en náði að prútta það aðeins niður.
Athugasemdir


