Evrópumeistarar Paris Saint-Germain hafa engan áhuga á því að hlusta á tilboð í franska vængmanninn Bradley Barcola, sem enska félagið Liverpool er sagt áhugasamt um að fá í sumar.
Liverpool er á höttunum eftir nokkrum vængmönnum í sumar og er Barcola sagður ofarlega á lista.
Mohamed Salah yfirgefur félagið í sumar og þá eru miklar líkur á því að Federico Chiesa fari einnig.
Ben Jacobs segir að Liverpool þurfi að horfa annað þegar það kemur að Barcola, en PSG mun ekki hlusta á tilboð í leikmanninn og er þegar farið að undirbúa samningaviðræður við franska leikmanninn.
Barcola getur spilað á báðum vængjunum og fjölhæfur sóknarmaður sem tikkar í mörg box hjá Liverpool. Hann er samningsbundinn PSG til 2028.
Hann á eftir að ræða við PSG um framhaldið, en hann mun væntanlega óska eftir því að fá skýrari sjón hvað framtíðina varðar, þótt hann hafi spilað fleiri mínútur en leikmenn á borð við Khvicha Kvaratskhelia, Desire Doue og Ousmane Dembele.
Dembele og Doue hafa báðir glímt við meiðsli yfir tímabilið sem hjálpaði Barcola að sækja fleiri mínútur, en staðan gæti verið allt önnur eftir sumarið.
Eins og staðan er núna er Barcola ekki til sölu. Liverpool er einnig að skoða aðra leikmenn á borð við Yan Diomande, Michael Olise og Anthony Gordon.
Athugasemdir



