Það verður svo sannarlega mismunandi andrúmsloft í vináttulandsleikjunum tveimur sem Ísland spilar í Toronto. Báðir leikirnir fara fram á BMO Field en hann verður notaður á HM í sumar.
Ákveðið hefur verið að leikur Íslands gegn Haítí næsta þiðjudag fari fram án áhorfenda.
Leikurinn verður klukkan 12:30 að staðartíma og hefur miðasalan verið það dræm að ekki er talið að það standi undir kostnaði að selja inn á leikinn. Því hefur verið ákveðið að sá leikur verði áhorfendalaus.

Það verður allt öðruvísi andrúmsloft á laugardaginn þegar Ísland leikur gegn heimamönnum í Kanada enda er HM spennan að byggjast upp hér í Toronto.
Þurfum að fara að ná í úrslit
Aron Einar Gunnarsson telur að þessi gluggi sé mikilvægur fyrir íslenska landsliðið uppá framhaldið að gera en seinna á árinu spilar liðið í Þjóðadeildinni. Hann segir að nú sé kominn tími á að skila úrslitum í hús.
„Þetta eru flottir æfingaleikir gegn liðum sem eru að búa sig undir HM í sumar. Þetta eru flott lið sem við erum að fara að kljást við. Eins og 'coach' er búinn að tala um þá þurfum við núna að fara að ná í úrslit þrátt fyrir að þetta séu æfingaleikir. Þjáningin verður að vera þess virði að við séum búnir að læra. Við þurfum að ná í úrslit á þessu ári, svo einfalt er það," segir Aron.
„Það er margt sem við höfum verið að fara yfir, það er gott að koma saman og slípa allt saman."
„Það eru einhver meiðsli hjá Kanada og þá vilja aðrir grípa tækifærið. Leikurinn gegn Kanada verður erfiður. Þetta er flott lið, pressa hátt og það er mikil orka. Þetta verður barátta og tempó. Við verðum búnir undir það." - Viðtalið má sjá í heild hér að neðan.
Athugasemdir