Moisés Caicedo, miðjumaður Chelsea, hefur þvertekið fyrir sögusagnir um að hann gæti verið á leið til Real Madrid.
Orðrómur um áhuga Real Madrid á Caicedo hefur verið í gangi í nokkra mánuði, en að undanförnu er það liðsfélagi hans á miðjunni, Enzo Fernández, sem hefur verið meira í sviðsljósinu í tengslum við möguleg félagaskipti til spænsku höfuðborgarinnar.
Fernández, sem er talinn vera óánægður eftir brotthvarf Enzo Maresca úr stjórastöðunni hjá Chelsea, hefur sent misvísandi skilaboð út í kosmósið varðandi áhuga Real Madrid að undanförnu. Hann hefur lýst yfir tryggð við Chelsea en á sama tíma ekki útilokað að fara frá félaginu í sumar.
Caicedo lét hins vegar engan vafa leika á afstöðu sinni.
„Ég er einbeittur að félaginu mínu," sagði hann þegar hann var spurður um möguleg félagaskipti til Madrídar.
„Ég er með samning við félagið og vil standa mig vel. Ég vil verða goðsögn þar, ef Guð lofar. Það er það eina sem skiptir máli núna."
Andrúmsloftið í kringum Chelsea hefur verið frekar þungt undanfarna mánuði. Óvissan um framtíð Enzo Fernández hefur bætt í neikvæðnina, en hann hefur hvorki ýtt undir sögusagnirnar né útilokað brottför. Caicedo þarf ekki að framlengja samning sinn til að sýna tryggð, hann er samningsbundinn til 2031, en hann hefur engu að síður nýtt tækifærið til að staðfesta að hann sé ekki að fara neitt.
Athugasemdir


