Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
   fös 27. mars 2026 23:54
Ívan Guðjón Baldursson
Vináttulandsleikir: Wirtz ótrúlegur - Noregur tapaði
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það var mikið fjör í vináttulandsleikjum kvöldsins þar sem Florian Wirtz var allt í öllu í ótrúlega skemmtilegum sigri Þýskalands í nágrannaslag gegn Sviss.

Liðin skiptust á að skora nærri allan leikinn og urðu lokatölur 3-4. Wirtz lagði fyrstu tvö mörk Þjóðverja upp í fyrri hálfleik og skoraði seinni tvö mörkin sjálfur í þeim síðari, þar á meðal sigurmarkið á 85. mínútu.

Þjóðverjar voru talsvert sterkari aðilinn en Svisslendingar nýttu færin sín til hins ítrasta svo úr varð gríðarlega spennandi slagur.

Dan Ndoye, leikmaður Nottingham Forest, skoraði fyrsta mark leiksins eftir laglegt einstaklingsframtak úti á vinstri vængnum og átti svo þátt í öðru marki Sviss sem Breel Embolo skoraði með skalla eftir fyrirgjöf.

Í fyrri hálfleiknum lagði Wirtz upp fyrir Jonathan Tah með glæsilegri fyrirgjöf og gaf svo magnaða stoðsendingu á Serge Gnabry, áður en hann skoraði sjálfur í síðari hálfleik. Fyrst skoraði hann algjört draumamark eftir stutta hornspyrnu sem má sjá hér, áður en hann skrúfaði boltann snyrtilega undir samskeytin eins og má sjá hér.

Til gamans má geta að hinn 18 ára Lennart Karl steig sín fyrstu skref fyrir A-landslið Þjóðverja í kvöld.

Sterkt landslið frænda okkar í Noregi tapaði þá gegn Hollandi en það vantaði lykilmenn í bæði lið, þar með talinn Erling Haaland.

Andreas Schjelderup náði forystunni í fyrri hálfleik en úrvalsdeildarstjörnurnar Virgil van Dijk og Tijjani Reijnders leiddu endurkomu Hollendinga svo lokatölur urðu 2-1.

Mikel Oyarzabal, samherji Orra Steins Óskarssonar hjá Real Sociedad, skoraði fyrstu tvö mörkin er Spánn lagði Serbíu þægilega að velli. Oyarzabal skoraði eftir stoðsendingar frá Pau Cubarsí og Fermín López leikmönnum Barcelona en lokatölur urðu 3-0 eftir mark frá Víctor Munoz, sem skoraði eftir undirbúning frá Ferran Torres - enn einum Börsungnum.

Leikmenn Barcelona lögðu því öll mörkin upp í 3-0 sigri Spánverja.

Í öðrum leikjum dagsins skoraði Egyptaland fjögur mörk gegn Sádi-Arabíu án Mohamed Salah og gerði Marokkó jafntefli við Ekvador á meðan Austurríki rúllaði yfir Gana.

Grikkland tapaði gegn Paragvæ og skoraði Alsír sjö mörk á móti Gvatemala.

Sviss 3 - 4 Þýskaland
1-0 Dan Ndoye ('17 )
1-1 Jonathan Tah ('26 )
2-1 Breel Embolo ('41 )
2-2 Serge Gnabry ('45 )
2-3 Florian Wirtz ('61 )
3-3 Joel Monteiro ('79 )
3-4 Florian Wirtz ('85 )

Holland 2 - 1 Noregur
0-1 Andreas Schjelderup ('24 )
1-1 Virgil van Dijk ('35 )
2-1 Tijjani Reijnders ('51 )

Spánn 3 - 0 Serbía
1-0 Mikel Oyarzabal ('16 )
2-0 Mikel Oyarzabal ('43 )
3-0 Victor Munoz ('72 )

Marokkó 1 - 1 Ekvador
0-1 John Yeboah ('48 )
0-1 Neil El Aynaoui ('62 , Misnotað víti)
1-1 Neil El Aynaoui ('88 )

Austurríki 5 - 1 Gana
1-0 Marcel Sabitzer ('12 , víti)
2-0 Michael Gregoritsch ('51 )
3-0 Stefan Posch ('59 )
3-1 Jordan Ayew ('77 )
4-1 Carney Chukwuemeka ('80 )
5-1 Nicolas Seiwald ('90 )

Svartfjallaland 2 - 0 Andorra
1-0 Stefan Mugosa ('41 , víti)
2-0 Milutin Osmajic ('80 )

Íran 1 - 2 Nígería
0-1 Moses Simon ('6 )
0-2 Akor Adams ('51 )
1-2 Mehdi Taremi ('67 )

Suður-Afríka 1 - 1 Panama
0-1 Yoel Barcenas ('23 )
1-1 Oswin Appollis ('48 )

Sádi-Arabía 0 - 4 Egyptaland
0-1 Islam Issa ('4 )
0-2 Trezeguet ('16 )
0-3 Zizo ('44 )
0-4 Omar Marmoush ('56 )

Grikkland 0 - 1 Paragvæ
0-1 Diego Gomez ('52 )

Alsír 7 - 0 Gvatemala
1-0 Amine Gouiri ('19 )
2-0 Riyad Mahrez ('31 , víti)
3-0 Achref Abada ('45+1 )
4-0 Houssem Aouar ('47 )
5-0 Amine Gouiri ('60 )
6-0 Fares Ghedjemis ('76 )
7-0 Nadir Benbouali ('82 )

Rússland 3 - 1 Níkaragva
1-0 Lechii Sadulaev ('3 )
1-1 Oscar Acevedo ('16 )
2-1 Konstantin Tyukavin ('45 , víti)
3-1 Aleksandr Golovin ('83 )
Rautt spjald: Christian Reyes, Nicaragua ('47)

Líbía 0 - 0 Níger

Jordanía 2 - 2 Kosta Ríka
1-0 B. Faisal ('50 , víti)
2-0 I. Sabra ('76 )
2-1 J. Alcocer ('84 )
2-2 Warren Madrigal ('90 )
Slapp
Athugasemdir
banner