Pétur Eiríksson er búinn að skrifa undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við Val en hann er fæddur 2010.
Hann hefur verið lykilmaður upp yngri flokkana og hefur þjálfarateymið fulla trú á að hann geti tekið stökkið upp í meistaraflokk.
Pétur leikur sem framherji og þykir vera afar metnaðarfullur svo nú eru spennandi tímar framundan á ferli hans.
„Fyrir utan hæfileika sína fyrir framan markið býr Pétur yfir mikilli vinnusemi og persónueinkennum sem við horfum mikið til hjá Val. Við erum með skýra leið fyrir okkar efnilegustu ungu leikmenn og teljum að undir leiðsögn þjálfarateymisins hafi hann alla burði til að verða mikilvægur leikmaður fyrir félagið í framtíðinni," segir Gareth Owens, tæknistjóri Vals, meðal annnars.
Athugasemdir


