Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
   fim 26. mars 2026 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fékk stóra upphæð frá Reynolds og McElhenney
Ryan Reynolds.
Ryan Reynolds.
Mynd: EPA
Fyrrum leikmaður Wrexham, Jordan Tunnicliffe, hefur fengið 8.000 punda styrk frá eigendum félagsins, Ryan Reynolds og Rob McElhenney, eftir að hafa slitið krossband. Það jafngildir rúmlega 1,3 milljónum íslenskra króna.

Varnarmaðurinn Tunnicliffe, sem er 32 ára og leikur nú með Farnborough í utandeildinni á Englandi, varð fyrir meiðslunum í leik gegn Enfield Town í síðasta mánuði.

Eftir að ljóst varð að hann myndi missa af restinni af tímabilinu setti félag hans upp GoFundMe-síðu til að safna peningum fyrir endurhæfingu hans.

Farnborough setti sér markmið upp á 15 þúsund pund til að standa straum af lækniskostnaði Tunnicliffe.

Hann fékk þó meira en helming þeirrar upphæðar eftir rausnarlegt framlag frá fyrrum eigendum Wrexham. „Jafnaðu þig fljótt," skrifuðu Hollywood leikararnir við framlag sitt.

Tunnicliffe lék 41 leik fyrir Wrexham á árunum 2022 til 2024 og hjálpaði liðinu að vinna sér sæti í deildarkeppninni á Englandi.

Þess má geta að þegar þessi frétt er skrifuð hefur tekist að safna 15 þúsund pundum.
Slapp
Athugasemdir
banner