Klukkan 16:30* tekur íslenska U21 landsliðið á móti því eistneska í undankeppni EM 2027. Leikurinn fer fram á AVIS-vellinum í Laugardal og er mikilvægt fyrir íslenska liðið að ná sigri til að halda í vonina á sæti á lokamótinu.
*Leikurinn átti að hefjast klukkan 16:00 en hefur verið seinkað um hálftíma.
Lúðvík Gunnarsson, þjálfari U21 landsliðsins, er búinn að velja byrjunarliðið fyrir leikinn.
Stærstu nöfnin; Gísli Gottskálk Þórðarson, Viktor Bjarki Daðason og Daníel Tristan Guðjohnsen eru allir í byrjunarliðinu. Daníel og Viktor eru að spila sinn fyrsta leik með U21 landsliðinu og Gísli Gotti er með fyrirliðabandið. Þá er Þróttarinn Hlynur Þórhallsson í liðinu og spilar sinn fyrsta leik í íslensku treyjunni.
Það vekur athygli að vinstri bakvörðurinn Daníel Freyr Kristjánsson sem spilaði í sigri Fredericia á FCK í dönsku úrvalsdeildinni um helgina byrjar á bekknum.

Lestu um leikinn: Ísland U21 1 - 0 Eistland U21
Byrjunarlið Íslands
1. Lúkas Petersson (m)
2. Hlynur Þórhallsson
4. Logi Hrafn Róbertsson
6. Baldur Kári Helgason
7. Ágúst Orri Þorsteinsson
9. Daníel Tristan Guðjohnsen
10. Gísli Gottskálk Þórðarson
19. Róbert Frosti Þorkelsson
20. Viktor Bjarki Daðason
21. Tómas Orri Róbertsson
23. Nóel Atli Arnórsson
Ætla má að þeir Daníel Tristan og Viktor Bjarki spili saman frammi og liðinu sé stillt upp í 4-4-2 en það er þó ekki þannig sett upp á vef UEFA.
Landslið karla - U21 - Undankeppni EM
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Frakkland | 4 | 3 | 0 | 1 | 14 - 2 | +12 | 10 |
| 2. Færeyjar | 6 | 3 | 3 | 0 | 6 - 12 | -6 | 9 |
| 3. Sviss | 5 | 2 | 1 | 2 | 7 - 4 | +3 | 8 |
| 4. Ísland | 5 | 2 | 1 | 2 | 7 - 5 | +2 | 8 |
| 5. Lúxemborg | 5 | 1 | 3 | 1 | 6 - 9 | -3 | 4 |
| 6. Eistland | 5 | 0 | 3 | 2 | 5 - 13 | -8 | 2 |
Athugasemdir