Það er nóg um að vera í íslenska boltanum í dag þar sem átta leikir fara fram í Mjólkurbikarnum á meðan Íslandsmeistarar Breiðabliks taka á móti Víkingi R. í úrslitaleik Lengjubikars kvenna.
Blikar gjörsamlega rúlluðu yfir Stjörnuna í undanúrslitum og verður fróðlegt að fylgjast með Víkingum sem hafa gert mjög gott mót í ár og unnu nokkuð þægilega gegn Þrótti R. í undanúrslitum.
Það er einn annar leikur á dagskrá í Lengjubikarnum þegar Völsungur spilar við Fjölni í C-deildinni. Liðin eru að berjast um annað sæti riðilsins og getur Fjölnir náð toppsætinu með ólíklegum sjö marka sigri.
Í Mjólkurbikarnum eru Völsungur, Ægir, Leiknir R. og Þróttur R. meðal heimaliða á meðan Grindavík er stærsta félagið sem mætir til leiks á útivelli.
Lengjubikar kvenna - A-deild úrslit
14:30 Breiðablik-Víkingur R. (Kópavogsvöllur)
Lengjubikar kvenna - C-deild, riðill 1
16:00 Völsungur-Fjölnir (GPG völlurinn)
Mjólkurbikar karla
12:30 Þróttur R.-Víkingur Ó. (AVIS völlurinn)
13:00 Völsungur-Kormákur/Hvöt (GPG völlurinn)
14:00 Ægir-Reynir S. (Knatthús Hauka)
14:00 Elliði-Grindavík (Fylkisvöllur)
14:00 Léttir-Árbær (ÍR-völlur)
14:15 Ýmir-KFS (Kórinn)
15:00 KFA-Sindri (Fjarðabyggðarhöllin)
16:00 Leiknir R.-Smári (Domusnovavöllurinn)
Athugasemdir


