Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   þri 28. september 2021 13:00
Elvar Geir Magnússon
Skoraði gegn Man Utd í úrslitaleiknum en getur ekki mætt liðinu á morgun
Gerard Moreno verður ekki með.
Gerard Moreno verður ekki með.
Mynd: EPA
Villarreal heimsækir Manchester United í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á morgun en þessi lið áttust við í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á síðasta tímabili.

Villarreal vann þann leik og hampaði sínum fyrsta stóra titli.

Gerard Moreno skoraði í úrslitaleiknum og var svo valinn leikmaður tímabilsins í Evrópudeildinni.

Hann getur hinsvegar ekki spilað í leiknum á morgun vegna vöðvameiðsla. Francis Coquelin verður einnig fjarverandi en hann tekur út leikbann.

Það eru þó líka góðar fréttir fyrir Villarreal því Juan Foyth, sem fór meiddur af velli í jafnteflinu gegn Real Madrid um síðustu helgi, er ekki kominn á meiðslalistann.

Unai Emery, fyrrum stjóri Arsenal, heldur um stjórnartaumana hjá Villarreal og mun væntanlega byrja með Paco Alcacer sem fremsta mann .
Athugasemdir
banner
banner
banner