Lokaumferð dönsku B-deildarinnar fór fram í dag þar sem Lyngby vann 1-0 sigur gegn Fredericia. Freyr Alexandersson stýrir Lyngby og náði að koma liðinu upp í efstu deild á sínu fyrsta ári.
Fyrir lokaumferðina hafði Lyngby tryggt sér úrvalsdeildarsætið en með liðinu spila Frederik Schram og Sævar Atli Magnússon.
Fótbolti.net var á lokaleiknum hjá Lyngby í dag og hér má sjá Frey fagna með stuðningsmönnum að leik loknum.

Spennandi verður að sjá hvernig Lyngby mun vegna í deild þeirra bestu.