Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   sun 29. desember 2019 14:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
„Klopp er frábær manneskja og þjálfari"
Mynd: Getty Images
Kevin-Prince Boateng lék undir stjórn Jurgen Klopp hjá Dortmund í skamman tíma, hann lék þar á láni. Hann segir Klopp ekki aðeins góðan þjálfara, einnig frábæra manneskju.

„Hann er góður í því að byggja upp stemmningu og fá alla með sér í lið," sagði Boateng.

„Hvernig hann fer að því veit ég ekki, ég held að það sé ekki neinn í Liverpool liðinu sem kann ekki að meta hann og þar með taldir leikmennirnir sem spila lítið. Þetta var ekkert ósvipað hjá Dortmund, hann er einstakur. Það eru allir tilbúnir til að berjast fyrir hann."

„Hann er frábær manneskja og þjálfari, yfirleitt er maður annað hvort en Klopp hefur klárlega bæði," sagði Boateng.

Jurgen Klopp verður á hliðarlínunni á Anfield í dag þegar Liverpool tekur á móti Wolves, flautað verður til leiks klukkan 16:30.
Athugasemdir
banner
banner
banner