Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mið 30. október 2019 16:27
Fótbolti.net
Eyþór Orri gerir nýjan samning við ÍBV
Eyþór Orri Ómarsson.
Eyþór Orri Ómarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eyþór Orri Ómarsson hefur gert nýjan tveggja ára samning við ÍBV.

„Knattspyrnuráð bindur miklar vonir við Eyþór enda er hann mikið efni," segir á heimasíðu ÍBV.

Sumarið 2018 varð Eyþór yngsti leikmaðurinn til að spila í efstu deild frá upphafi, 14 ára gamall, þegar hann kom inn sem varamaður í leik ÍBV gegn KR.

Eyþór varð sextán ára í sumar en hann spilaði sjö leiki í Pepsi Max-deildinni á liðnu tímabili.

ÍBV féll úr deildinni og leikur í Inkasso-deildinni á næsta ári.
Athugasemdir
banner
banner