Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mið 30. desember 2020 21:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Schalke ætlar að fá Kolasinac frá Arsenal
Mynd: Getty Images
Þýska félagið Schalke ætlar sér að fá Sead Kolasinac að láni frá Arsenal út þessa leiktíð.

Þetta herma heimildir Sky í Þýskalandi. Kolasinac gekk í raðir Arsenal frá Schalke árið 2017. Ef skiptin ganga í gegn þá mun Arsenal greiða hluta af launum bakvarðarins.

Kolasinac er landsliðsmaður Bosníu og Hersegóvínu og er hann 27 ára gamall.

Hann hefur einungis komið við sögu í einum leik í úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner