Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fös 31. janúar 2020 09:11
Magnús Már Einarsson
AC Milan að fá bakvörð frá Wigan
Mynd: Getty Images
AC Milan er nálægt því að kaupa varnarmanninn Antonee Robinson frá Wigan í Championship deildinni á Englandi.

Hinn 22 ára gamli Robinson hefur verið á óskalista Wigan undanfarnar vikur en hann er nú á leið til Ítalíu í læknisskoðun.

Kaupverðið hljóðar upp á tíu milljónir punda.

Robinson kom til Wigan frá Everton á tvær milljónir punda síðastliðið sumar.

Wigan er í fallbaráttu í Championship deildinni en félagið ætlar að nota peninginn sem fæst fyrir Robinson til að fá nýja leikmenn í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner